
SKILNINGUR
Á STARFI STJÓRNENDA & MANNAUÐSRÁÐGJAFA
Með margra ára reynslu sem stjórnandi, mannauðsráðgjafi og stjórnendamarkþjálfi hefur Guðrún mótað nýja nálgun í stjórnendaþjálfun. Allt efni í þjálfun og námskeiðum er byggt á vísindalegum og fræðilegum grunni. Mikil áhersla er lögð á að efnið sé hagnýtt og einfalt að heimafæra á raunveruleg dæmi sem stjórnendur geti nýtt sér í lífi og starfi.
Sérstaða Guðrúnar liggur í aðlögunarfærni hennar til að nýta fyrri reynslu og sérsníða efnið sitt í samstarfi við sína viðskiptavini. Styrkleikar og áskoranir viðskiptavinarins fá því sérstaka nálgun í hvert skipti til að ná hámarks árangri.

LEIÐTOGAÞJÁLFUN
HUMAN
LEADER
Þarftu sérsniðna þjálfun sem tekur mið af hæfnisþörfum leiðtoga til framtíðar? Guðrún Snorra veitir þjálfun sem miðast við þínar aðstæður og hjálpar þér að vaxa sem leiðtogi. Meðal þess sem þú öðlast í þjálfuninni má nefna eftirfarandi :
-
Þekking á helstu færni sem stjórnendur þurfa að búa yfir til framtíðar
-
Þekking á ólíkum stílum við stjórnun mismunandi kynslóða á vinnumarkaði
-
Færni í markþjálfunartækni sem nota má í margvíslegum samtölum við starfsmenn, allt frá örsamtölum til leiðbeinandi samtala
-
Notkun á styrkleikanálgun við stjórnun, kenndar eru aðferðir til að nýta eigin styrkleika og styrkleika starfsmanna
-
Þekking á því hvernig efla má virkni og tilgang
-
Þekking á eigin þrautseigjustuðli ásamt aðferðum til að takast á við álag og streitu
-
Hagnýtar leiðir til að auka traust og sálrænt öryggi í teymum
-
Aukin skilningur á gildi tilfinningagreindar og leiðum til að auka eigin tilfinningagreind
Fyrirlestar og vinnustofur
Hvaða breytingar eru framundan hjá fyrirtækinu?
Hvar liggja áskoranirnar?
Hvernig þjálfun eða fyrirlestur nýtist þér best?
Við sköpum saman umgjörðina og efnið sem þitt fyrirtæki þarf.
Dæmi um vinsæl efnistök:
Þrautseigjuþjálfun
Styrkleikar í lífi og starfi
Markþjálfunartækni við þjónustu
Þrautseigja á tímum breytinga
Brúum bil kynslóðanna á vinnumarkaði
vinnumarkaði
Markþjálfun og ráðgjöf
Markþjálfun er aðferð sem miðar að því að leysa úr læðingi þá möguleika sem einstaklingur eða hópur býr yfir. Algengt er að ný tækifæri og sjónarhorn komi í ljós í samtali við viðurkenndan stjórnendamarkþjálfa. Aðferðin styttir leiðina að tilteknu markmiði sem getur verið persónulegur vöxtur, aukin lífsgæði eða betri árangur í starfi.
Viðfangsefni markþjálfunar eru eins mismunandi og þeir einstaklingar og teymi sem nýta sér slíka þjálfun.
Færni til framtíðar
Hvernig nýtir þú þekkingu þína, reynslu og styrkleika til að mæta nýjum kröfum og undirbúa þig fyrir framtíðina?
Hefur þú möguleika á að hafa áhrif á hvernig starfið þitt mótast eða viltu bætast í hóp þeirra sem starfa á eigin vegum?
Hvaða breytingar eru í vændum á vinnumarkaði og hvernig getur þú tekið virkan þátt í þeim?
Taktu skref til móts við framtíðina!
Guðrún Snorra
Guðrún Snorradóttir, stjórnendaþjálfi, hefur víðtæka reynslu af því að nota verkfæri markþjálfunar og jákvæðrar sálfræði, bæði hér heima og erlendis.
Guðrún er með MSc í hagnýtingu jákvæðrar sálfræði frá Anglia Ruskin háskólanum í Cambridge auk þess að vera vottaður PCC stjórnendamarkþjálfi frá International Coaching Federation.
Sérsvið Guðrúnar er þjálfun á færni leiðtoga til framtíðar. Má þar nefna þrautseigju, tilfinningagreind, nýtingu styrkleika, leiðir til að skapa aukið traust og sálrænt öryggi ásamt nýtingu markþjálfunar við þjónustu og í margvíslegum samtölum við starfsmenn.
Manneskja í mótun
Þekking er okkur mikilvæg,
en sjálfsþekking er ennþá mikilvægari.
Brené Brown

HAFA SAMBAND
Hafa samband

UMSAGNIR
VIÐSKIPTAVINA
"Það hefur verið mér sannkallaður heiður að vinna með Guðrúnu.
Það sem hún hefur umfram marga ráðgjafa er að hún hefur langa reynslu af stjórnun og hefur því tekist á við flestar þær áskoranir sem stjórnendur eru að glíma við.
Guðrún er lifandi og skemmtilegur fyrirlesari og hefur sérstakt lag á að hrífa hópinn með sér og vinna traust þeirra sem til hennar leita.
Það sem gerir Guðrúnu að framúrskarandi þjálfara, ráðgjafa og markþjálfa er hversu mikið hún gefur af sér, einstakt innsæi á líðan fólks og sérlega góð nærvera.
Ég get mælt með Guðrúnu fyrir fyrirtæki og stjórnendur sem vilja skapa samkennd, auka traust og ná betri árangri í mannauðsmálum.“
Bergþóra Hrund Ólafsdóttir / LS RETAIL / Mannauðsstjóri
"Gudrun is a great coach and trainer, who can help others grow and develop. She has multiple skills as a soft skills trainer and has done valuable work with some of our teams, helping them set communication agreements. She is a real strength finder and helps others with opportunities.
I can recommend her for various soft skills training f.ex. communications, customer service, leadership skills and coaching."
Dröfn Guðmundsdóttir / ORIGO / Human Resource Manager

UMSAGNIR
VIÐSKIPTAVINA
"As the CEO of the Blue Lagoon, I´m delighted to offer my highest recommendation for Guðrún Snorradottir as a leadership trainer. Her transformative leadership program has been instrumental in propelling our organization to remarkable heights of functionality and cohesion, particularly during challenging times.
Guðrúns arrival marked a pivotal turning point, ushering in an era defined by growth and empowerment, all underpinned by her steadfast commitment to fostering 21st-century leadership. Most important for myself and my management team was her, coaching technique, trust, psychological safety, resilience, strength building, and emotional intelligence.
With unwavering dedication to fortifying interpersonal skills her coaching has been a turning point for us in nurturing a positive culture of collaboration and mutual respect within our team. Not only has it fuelled creativity but also facilitated effective problem-solving and fostered an environment ripe for innovation and growth.”
Grímur Sæmundsen / BLUE LAGOON/ CEO
"Gudrun is a great coach and trainer, who can help others grow and develop. She has multiple skills as a soft skills trainer and has done valuable work with some of our teams, helping them set communication agreements. She is a real strength finder and helps others with opportunities.
I can recommend her for various soft skills training f.ex. communications, customer service, leadership skills and coaching."
Dröfn Guðmundsdóttir / ORIGO / Human Resource Manager